18.01.2008 15:55:40 / tinnagb

2008

.. kominn tími á blogg!

það er komið árið 2008!! eigum við eitthvað að ræða það.. það er rugl!

áramótaheitið er í vinnslu og allt að gerast ;)

jólin voru aðeins of nice!!! ég svaf og ég svaf og ég svaf og borðaði.. ar mjööög dugleg í því;)
ég fékk svaka marga fína pakka, ekki það að það skipti máli ;) iiiiii ;)
fékk kitchenaid blandara, ógeeeeð glöð með hann, hnífaparasett, tertuspaða og gaffla, salatskeiðar-allt það voða fínt design ;) , annan blandara, risa klukku, rosendahl glös, matreiðslubók, handklæðasett, pumasokka og lúffur, bolakjól, náttföt, pening, senseo kaffivél, mynd.. þetta er svona það sem ég man í augnablikinu... ;) very good ;)   

skólinn byrjaði í síðustu viku og verð ég að segja að hann byrjaði ekki alveg eins vel og ég hefði viljað, ég og Ásdís fórum í áheyrn í Árbæjarskóla og já.. ekki eins og ég hefði óskað mér!
svo byrjaði skólinn, eða tímar og svona, í þessari viku.. ég er með fínustu stundatöflu og byrja allt 100% eftir helgi.. maður er eitthvað seinn í gang svona;)

eigum við eitthvað að ræða veðrið líka.. deeem gina.. ég er á sumardekkjum og það er bara ófært fyrir mig heheh ;) ég ákvað að taka bara sénsinn á að það kæmi enginn vetur en það er eitthvað sem ég hefði kannski betur sleppt, það tekur því samt ekki að fá sér vetrardekk úr þessu ;)

Ernie mín er stungin af til DK og ég er ekki alveg nógu glöð með það.. sko mín vegna.. ég er hrikalega glöð fyrir hennar hönd samt! ;)
ég er bara orðin svo spennt að fara í heimsókn til hennar.. það er á fjárhagsáætluninni fyrir árið, allavegana 4 heimsóknir.. svo langar mig líka til Agnesar sys og Bjarka..
verð eiginlega að krossa fingur og vona að ég vinni í lottóinu;)

ég hef ekki mikið meira að segja í bili :)

har det bra ;)

luv
-Tinna


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 22:19:52 / tinnagb

kaloríureglur fyrir jólin!!!

KALORÍUREGLUR FYRIR JÓLIN  

*Maturinn sem þú borðar þegar enginn sér til hefur engar kaloríur

*Þegar þú borðar með öðrum eru einungis kaloríur í matnum sem þú borðar umfram þau.

*Matur sem er neytt af læknisfræðilegum ástæðum (t.d. jólaglögg, heitt súkkulaði, rauðvín o.s.frv.) inniheldur aldrei kaloríur

*Því meira sem þú fitar þá sem þú umgengst daglega því grennri sýnist þú

*Matur (t.d. poppkorn, kartöfluflögur,hnetur, gos, súkkulaði og brjóstsykur) sem er borðaður í kvikmyndahúsi eða þegar horft er á myndband er  kaloríulaus vegna þess að hann er hluti af skemmtuninni.

 

 

*Kökusneiðar og smákökur innihalda ekki kaloríur þar sem þær molna úr þegar bitið er í þær.

*Allt sem er sleikt af sleikjum, sleifum, og innan úr skálum eða sem ratar upp í þig á meðan þú eldar matinn inniheldur ekki kaloríur vegna þess að þetta er liður í matseldinni.

*Matur sem hefur samskonar lit hefur sama kaloríufjölda (t.d. tómatar = jarðaberjasulta,  næpur = hvítt súkkulaði)

  

 

*Matur sem er frosinn inniheldur ekki kaloríur því kaloríur eru hitaeiningar

   
**   GLEÐILEG JÓL   **


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 11:27:07 / tinnagb

allt og ekkert...

þá er búið að klippa á naflastrenginn og ég flogin úr hreiðrinu ;)

mér líður rosa vel bara í nýju íbúðinni en þarf að koma til múttu og pabba til að fara á netið þar sem ég er ekki komin með það heim til mín ;)
en það fer að koma.. þegar ég skil hvað ég á að gera til að fá það!

það er svosem ekkert að frétta af mér þannig séð...
ég og pabbi ætlum að skella okkur til Köben innan skamms til að knúsa systu og Bjarka og versla smá... en það er ekki mín hugmynd heldur pabba..
ég er búin að reyna að segja honum að ég geti ekkert verið að versla en hann bara JÚÚÚ Tinna! það er ekkert hægt að fara til Köben án þess að koma við í HM og svona ;)
riiiight ;)

Helga ætlar að koma í mat til mín í kvöld.. hlakka til að fá hana til min... :)

jiminn.. ég var hjá Mörthu tannsa í gær, var ekki nema í nokkra klukkutíma og það var ég deyfð á við hross!!! og er aðeins að fá að finna fyrir því, það er örugglega ekki hollt að fá allt þetta efni í sig en ég er að dreeepast í hausnum ennþá í dag.. en eftir nokkra daga verð ég glöð og ánægð með þetta ;)

..hey.. ég var að horfa á ,,ertu skarpari en skólakrakki" og er fólk eitthvað klikk í haus eða??
ein gella bara mætt til að vinna þetta allt... hún var mjööög leiðinleg við krakkana... er ekki í lagi.. hún fékk eitthvað vitlaust og bara skeit yfir krakkann, hún var að skammast í krakka sem er 10 ára fyrir að gera eitthvað vitlaust sem hun vissi ekki einusinni sjálf!!!
krakkinn fékk að velja flokk til að svara úr og vissi svo ekki svarið... váááá kommon!!
ég varð svo pirruð að horfa á þetta að ég slökkti bara á sjónvarpinu.. shit hvað hún var glötuð þessi gella! svo var hún að velja sér krakka og sagði eitthvað nafn.. ég ætla að velja þennan afþví hann er traustvekjandi eða eitthvað álíka, svo bara.. ÉG ætla að velja flokk nuna!

jeeesús.. farðu í þátt með börnum og kúkaðu svo bara uppí þau!! jáá sææææll!!!
leyf mér að hugsa... NEI!!! ;)

ooo mig langar svo á laxakúrinn.... veit einhver eitthvað um hann með viti?? má matreið þetta eða hvað? :)
ég er sjúk í þetta...
eina að ég hef ekki smakkað lax en vona bara að mér finnist hann góður :)

jæja ég held þetta sé komið fínt í bili...

luv
-Tinna :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 23:55:24 / tinnagb

þriðjudagur til þrautar!!!!

þá fer allt að verða reddý í íbúðinni minni og ég fer að flytja inn :D

ég fór með rúmið mitt áðan og það var svona það síðasta sem var eftir.. fyrir utan svona smottery auðvitað ;)

pabbi hengdi upp myndir og svona áðan... málverk eftir mig, honum finnst það alveg ógeðslega ljótt og hallærislegt og ég bara vissi ekki hvert hann ætlaði..

en missta floooott ;)

mamma þvertók fyrir það að ég mundi sofa í nótt, þó rúmið og allt sé komið...

.....ástæðan er ÞRIÐJUDAGUR TIL ÞRAUTAR!!!!
ég veit að Melsteð og svona einhverjir eru sammála þessu... en þvílíka bullið!! hahaha

ég er þá að spá í að sofa ekki á morgun, því það er til moldar og ég nenni ekki að láta jarða mig, ég held það þýði það.... en fimmtudagur til frægðar hljómar alls ekki ill.. svo ekki sé nu talað um föstudagur til fjárs ;) hahah

ég hlakka svo til að fá alla í heimsókn og svona... ;)
býð ykkur í vatnsglas ;)

jæja komið gott í bili...
afi.. kommentaðu nú ;)

luv
-Tinna :)


» 13 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 09:30:13 / tinnagb

....

hvað er uppi?

ég er hætt við að leigja út íbúðina mina og ætla að flytja sjálf ;) YAY ;)

-fór með múttu og pabba í IKEA í gær og keypti það fyrsta sem ég á í búið.. fyrir utan salatskálina góðu ;)
keyptum:

borð undir tv-ið, náttborð í stíl, diska, skálar og glös, hnífa, hnífapör, skurðarbretti, mynd, uppþvottabusta, viskustykki og þetta helsta :D

 svo var bara haldið heim til að skoða ísskápa á netinu... mér finnst ég vera að taka soldið stórar ákvarðanir, ég væri alveg til í að geta mátað til dæmis borðin inn í íbúðina áður en ég kaupi þau eins og með föt skiljiði..
en það virkar ekki alveg þannig og ég bara geri mitt besta ;)

ég keypti mér líka bíl á föstudaginn...
Toyota corolla, hvít, 2002 módel held ég eða 3, svona pæjubíll soldið :)

jahh ég held ég hafi lítið annað að segja.. en þetta er nu það mesta sem ég hef haft í fréttum lengi þannig að það er voða gott ;)

ég ætla að byrja að vinna á morgun aftur eftir veikindafrí, ég held ég sé orðin fín .. en ef ekki þá kemur það í ljós :)

þar til næst :)

luv
-Tinna...


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 12:02:51 / tinnagb

...allt að koma...

jáhh ég er öll að koma til af þessum veikindum..

ég er allavegana farin að geta kyngt og ekki svona kvalin eins og ég var :) sem er bara jákvætt:)

ég fór í gær með Helgunni minni á Salatbarinn og smá rúnt...hrikalega var gott að komast aðeins út:)

svo kíkti ég aðeins í bekkjarparty-vááá hvað mig langaði að djamma!!!!!
við vorum allavegana sammála um það að ef ég hefði verið að fá mér aðeins í aðra tánna þá hefði ég verið ööörlítið hressari og í meiri gír! ;)

-ég fékk vægt sjokk í gær-

við sem sátum í edrúsófanum vorum að spjalla og þá var mér sagt að ég mætti ekki drekka í 6 mánuði!!!!!!! en ég kaupi það ekki fyrr en einhver faglærður segir mér það..

já er þá ekki bara spurning um að láta leggja sig inn ;)
allavegana vona ég að þessi vinur minn hafi bara verið að plata mig ;)

ég var að lesa blogg hjá einhverri konu sem ég þekki ekki neitt.. hún hefur greinilega lent í einhverjum almennum leiðindum með fyrrverandi manninn sinn og ákvað að hefja nýtt líf og einbeita sér að því að elska börnin sín og þá sem áttu það skilið og vera jákvæð..
ég dáist að þessari konu.. já ég er að spá í að gera þetta líka.....

nú einbeiti ég mér bara að því að elska börnin mín ;)
segja þeim sem eru æði að þeir séu það og segja vinum mínum að ég elska þá.. og allt það! :D

elsku Diddan mín eignaðist prins á mánudaginn og er þetta ekki bara fallegasta barnið.. jiiidúdda mía hvað hann er yndislegur og Didda engin smá MILF ;)
Til hamingju aftur og aftur með þennan gullmola.. og ég veit ekki hvort þetta sé bara kjaftasaga eða hvað .. en ég er búin að heyra að hann eigi að heita Tinni...
jááá það er orðið á götunni ;)

luv :*

-Tinna :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 15:49:33 / tinnagb

allt og ekkert...

.. já það er nú ekki mikið að frétta á mínum bæ..

ég fékk íbúðina mína afhenta síðasta mánudag og er alveg hrikalega ánægð með hana :D

ég ætla að leigja hana í nokkra mánuði og lýst voða vel á það ;)

ekki er annað að frétta en í gærkvöldi var ég aftur komin með 39 stiga hita.. i know.. ekkert mjög eðlilegt.. en ég svaf ekkert í nótt og var alveg að drepast..

fór til læknis í morgun og fór í blóðrannsókn, semsagt sprautuógeð.. svo var læknirinn að hringa í mig með niðurstöðurnar og ég er með einkyrningasótt!!!!!!!!!!!!!!! :cry:

það eru ekki nein lyf sem hægt er að taka, líkaminn þarf að vinna á þessu sjálfur.. ég verð örugglega veik í 3 vikur með hita og viðbjóð og má ekki æfa handbolta í 3 mánuði!!! :(

það er víst ekkert við þessu að gera svo ég verð bara hérna heima ef einhver vill koma í heimsókn!

-Tinna


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 13:57:34 / tinnagb

veikindi og almenn leiðindi

kominn tími á blogg.. ég hef ekkert að gera og þá get ég alveg eins skrifað nokkrar línur;)

ég er búin að vera veik síðan á miðvikudaginn og það er ekki alveg uppáhalds, þess vegna nenni ég ekki að tala um það ;)

ég er búin að horfa á ööömurlegar myndir og leigði mér mynd í gær sem heitir "Because I said so" með Mandy Moore og mér fannst fún góð.. I know.. ég er ekki með neitt mjög fágaðan kvikmyndasmekk en ég er alltaf að reyna að taka mig á;)
okok.. ég hafði ekkert að gera í gær og horfði á hana 3x!!! er það ekki bara of mikið!!

svo stóðu Olsen twins ekki alveg fyrir sínu en ég horfði á einhverjar myndir með þeim...

ég sagði við hana elsku Ásdisi mína: oo ég er að horfa á glataða mynd með Olsen twins!
og þessi elska sagði: jáá hann!!
hahahahahahahah þú ert æði esska :)

planið um helgina er ekki mjög merkilegt..
*ég átti að fara að vinna í gær á balli í félagsmiðstöð en því miður komst ég ekki vegna veikinda.. var orðin spennt að prófa þetta :)

*ég á að fara í fimmtugs-afmæli hjá Báru frænku í kvöld, ég veit ekki hvort ég verði orðin hress sko en ef ég verð sæmileg þá kíki ég kannski og gef henni knús :)
annars ætlaði ég að fara með Ernie að passa, ég get alveg eins gert það eins og að hanga uppí sófa heima hjá mér... sjáum hvernig það fer;)

*á morgun ætlum við, ég mamma og Fanney held ég að kíkja á ömmu og afa í Lýsudal og svona svo er saumó hjá Ernesto.. hlakka til að hitta þær stelpurnar...
svo er Slauga bara að fara eftir few days!! shit hvað það er crazy! ;)

jæja.. ég held þetta sé komið fínt í bili...

luv
-Tinna :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 18:16:22 / tinnagb

hressandi skólabyrjun!!

skólinn byrjaði í morgun.. ég var bara orðin voðavoða spennt að komast í þá rútínu sem fylgir skólanum því það hentar mér mjög vel! ;)

ég vaknaði ein sú myglaðasta í morgun eftir aðeins 5 tíma svefn, hrikalega þreytt og langaði ekki framúr..
á endanum lét ég mig hafa það, skellti mér í shower, blés og slétti hárið og skelli upp andlitinu ;)

þegar ég er að keyra í skólann er ég voða mikið að hugsa og svona eins og ég geri svo mikið...

þegar ég er alveg að verða komin í skólann og mín var bara mætt soldið áður en tíminn byrjaði.. þá lendi ég í árekstri!!! frááááábært!!!

ég er sooldið hrædd um að ég verði þá að byrja á byrjun að gera það sem ég er búin að vera að gera mjöööög lengi, að reyna að jafna mig í bakinu og það er ekki gaman...

eini ljósi punkturinn er að ég er í rétti, þó ég hafi keyrt á konuna þá keyrði hún eiginlega á mig þar sem var hægri réttur you know ;)
oooog ég verð að fá mér nýjan bíl núna held ég.. þetta virkar ekkert svona!

 eeen annað en þetta.. ég er voða glöð að vera byrjuð í skólanum bara og allt að gerast.. eða eitthvað!

luv
-Tinna :)


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 14:38:02 / tinnagb

smásaga!!!

Smásaga:

Mamman gekk fram hjá herbergi dóttur
sinnar og varð nokkuð undrandi að sjá að það var búið að búa um rúmið
og taka vel til í öllu herberginu. Hún sá að það var umslag á miðju
rúminu og á því stóð: TIL MÖMMU. Mjög áhyggjufull opnaði hún umslagið
og las skjálfhent bréfið sem í því var.

Elsku mamma. Það hryggir mig nokkuð að þurfa að segja þér með bréfi þessu að ég er hlaupin að heiman.
Ég geri þetta svona til að koma í veg fyrir að þið pabbi reiðist mér. Ég hef að undanförnu fundið sterkar tilfinningar til Ahmeds og hann er svo yndislegur þrátt fyrir öll götin, húðflúrin, skeggið og mótorhjólagallana sína.
En það er ekki bara það mamma mín að ég ber svona sterkar tilfinningar til hans því að ég er ólétt og Ahmed segir
mér að hann sé svo glaður með það. Hann er þegar búinn að kaupa
hjólhýsi fyrir okkur að búa í og hann er búinn að safna helling af
eldivið til að halda á okkur hita í allan vetur. Hann er búinn að segja mér að hann langi til að eignast með mér fullt af börnum og ég er svo innilega sammála honum með það.
Ahmed hefur kennt mér það að marijuana gerir engum illt í raun og veru og ætlar hann að rækta nóg af því fyrir okkur þannig að við munum eiga nóg af því afgangs til að skipta á því og kókaíni og
E-töflum handa okkur báðum.
En ég vona líka að vísindamenn finni fljótlega lækningu á AIDS svo að Ahmed mínum batni, hann á það svo skilið!!
En ég bið þig að hafa ekki áhyggjur mamma mín því að ég er nú orðin 15 ára og kann alveg að sjá um mig sjálfa.
Þar að auki er Ahmed orðinn orðinn þrítugur þannig að hann veit vel hvað hann er að gera.
Einhvern daginn ætla ég svo að koma í heimsókn svo að þú getir hitt öll barnabörnin þín.

Þín dóttir Guðrún.

PS: Mamma, ekkert að ofansögðu er satt.
Ég er í heimsókn hjá Siggu í næsta húsi. Mig langaði bara að láta þig vita að það er margt verra í heiminum en einkunnaspjaldið mitt sem er í efstu skrifborðskúffunni.
Ég elska þig. Láttu mig vita þegar það er óhætt fyrir mig að koma heim.

hahahahahah aðeins of gott bréf!!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.08.2007 07:40:18 / tinnagb

Þjóðhátíð.....

...eftir 4 tíma verð ég mætt í þjóðhátíðarstemmningu í Þorlákshöfn!!! :D YAY!

ég er orðin frekar spennt og náði þess vegna að vakna kl 7, í fyrsta skipti í laaaangan tíma;)

spurningin er hvað skal taka með sér.. hmm.. regngalla og stuttbuxur?!?!
það er allavegana eitt sem ég veit og það er að ég fer með gúmmítúttur og þægileg föt ólíkt því sem ég og Ragnhildur mín gerðum þegar við fórum í fyrsta skipti!! heheh
þá voru það bara pæjuföt, pumaskór, skartgripir, sléttujárn og svona þetta helsta;) heheh
ég held það sé eina vitið að taka regngallann og stuttbuxur þar sem spáin er hrikaleg í dag og kemur Gubbólfur til með að bera nafn með rentu!! en á morgun og hinn á að vera voða fínt veður.. svo ég get sagt að ég er sátt:)

ég verð að viðurkenna að ég er smá með í mallakút yfir Herjólfi því eg er nú einusinni skíííthrædd við sjóinn og hákarla!!!! shiiit! en ég krossa fingur og vona það besta:)

... fokk.. ég sit í rúminu mínu og heyri bara hvað það er ógeðslegt veður, brjálað rok og ógeð.. obbbbobb...

eeen..

jæja ætli það sé ekki best að koma sér í ræktina og skella sér svo af stað til Eyja!!! :D

skelli svo inn slatta af myndum eftir helgina!!

góða skemmtun allir.. hittumst vonandi á westman island! ;)

-Tinna... á þjóðhátíð ég fer, fer, fer ;)

*puttar* A *puttar*


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 23:57:06 / tinnagb

alveg búin!

langt síðan síðast.´..

eg er búin að fara til Köben sem var æðiiii!!!
ég og Ásdís skelltum okkur til Agnesar sys og skemmtum okkur konunglega ásamt því að versla af okkur rassgatið!! úfff.. mikið rosalega var það gott :D

keypti mér ...
*2 púmaskó
*kawasaki skó
*4 peysur
*7 kjóla
*19 boli
*3 íþróttabuxur
*nærföt, sokka, gammó, belti og svona..
*puma tösku
*glingur og snyrtidót
*3 sólgleraugu
*jakka
*... man ekki meira í augnablikinu... ;)

mér létti mikið við þetta.. voðavoða gott:)

eftir þetta fór ég svo í sveitasæluna með Ásdísi... það var slakandi .. og mikið hoppað....
ég bara verð að eignast trampolín!!! ég bara elska að hoppa á þessu :D

jæja.. ég veit ekki svosem hvað ég á að segja mikið... hlakka til helgarinnar...
létt hjá Helgu á morgun og svo ammó hjá Ragnhildi minni á lau!!! yay!

hendi svo inn myndum ;)

luv
-Tinna :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.07.2007 13:31:31 / tinnagb

sunnudagsleti!

ég skil ekki til hvers þessi sunnudagar eru!!

það er ekkert að gera..

það er bara formúlan og mótorhjólaþættir í TV-inu!! obbobbobb

maður verður svo latur að maður nennir ekkert að vakna í vinnu á morgun..

þá kemur það sér voðavoða vel að vera komin í SUMARFRÍ!!! jeijjjj!!!

ég er komin í 3ja vikna frí og þvílík gleði!!!! ;)

ég og Ásdís mín erum að fara til Agnesar stóru sys eftir nokkra daga og ég hlakka ekkert smá mikið til að geta knúsað Bjarkann minn í kaf og eyða smá tíma með þeim :)

svo ætlum við að sjálfsögðu að spreða í föt og aðrar nauðsynjavörur ;) jeijj það er uppáhalds!!

 helgin er búin að vera voða fín.. á föstudagskvöldið fór ég bara út að hlaupa með Ásdísi og svo kíktum við smá rúnt að skoða fólkið! :)

fór í sveitina til ömmu og afa með lil sys á laugardaginn.. fórum í reiðtúr og það var bara æði.. ég held ég sé að fá hestabakteríu!!! :) i looove it:)
ég var svo þreytt eftir ferðina vestur að ég nennti engu, fór til Ernie og Ernu og þar staupuðum við okkur með skittlesi og fórum vægast sagt í sykursjokk og létum öllum illum látum.. þegar ég hélt að kvöldið væri búið þá fó ég ásamt henni Ernu minni einn rúnt og hittum Ragnhildi, Árna Stefán og Arnheiði og þau náðu að plata okkur að rölta smá...
sem er ekki frásögufærandi.. nema hvað...
ég var í íþróttabuxum, hettupeysu og adilettum!!!.. og í þokkabót ómáluð.. má það.. neiii!!!

svo ég skellti mér í karakter og í ham, setti upp sólgleraugu og lét eins og kjáni.. mikið roosalega var það gaman!!! :) mikið hlegið og svo sofnaði ég vel eftir það :)

það styttist óðfluga í þjóðhátíð og ég er að deyja úr spenningi!! yay!! ;)

en þetta er komið voða fínt.. fyrir Agnesi mina :)

luv

Paris the Pirot ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 01:09:13 / tinnagb

..verð..

hefuru séð þarna hnihnindina með John Boil?

æii það eru þarna kanvors í henni og syskon sem heilsa alltaf þegar þau eru með jóka ídýfu!

hahahaha ;)

of fyndið :lol:

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 21:33:10 / tinnagb

fallegt!

Sagan segir að tveir vinir hafi gengið í eyðimörk. Á leiðinni
fóru þeir að rífast, og annar vinurinn gaf hinum létt á kjammann.
Honum sárnaði, en án þess að segja nokkuð skrifaði hann í sandinn;
" Í DAG GAF BESTI VINUR MINN MÉR, EINN Á ´ANN!" Þeir gengu áfram
þangað til þeir komu að vatnslind og þar fóru þeir út í. Vinurinn
sem hafði orðið fyrir kjaftshögginu var nærri drukknaður, en var
bjargað af vini sínum. Þegar hann hafði jafnað sig , risti hann í
stein; "Í DAG BJARGAÐI BESTI VINUR MINN MÉR FRÁ DRUKKNUN".
Vinurinn sem bæði hafði veitt honum tiltal og bjargað honum
spurði: "Þegar ég sló þig, skrifaðir þú í sandinn, og núna skrifar
þú í steininn. "Af hverju?" Hann svaraði: Þegar einhver gerir þér
eitthvað illt áttu að skrifa það í sandinn, þar sem vindur
fyrirgefningar getur eytt því. En þegar einhver gerir þér
eitthvað gott þá áttu að grafa það í stein þar sem enginn getur
eytt því. "LÆRÐU AÐ SKRIFA SÁRINDI ÞÍN Í SANDINN OG GRAFA
HAMINGJU ÞÍNA Í STEIN"! Það er sagt að það taki mann eina mínútu
að hitta sérstaka manneskju, einn tíma að kunna að meta hana, einn
dag að elska hana, en HEILA ævi að gleyma henni.

!!I love it!!

..muniði þetta..

..þetta er dagsatt..

..að mínu mati..

-Tinna-


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7